Jæja þá er maður kominn til Kína!!!!
Ég lagði af stað frá Íslandi 4 apríl og var lentur í Beijing um
morguninn 5 apríl. Fyrsti dagurinn fór bara í að slaka á eftir
ferðalagið og kanna svæðið. Ég er við æfingar í Beijing Sports
University sem er íþróttaháskóli og einn sá stærsti og virtasti í
Kína.Taekwondo deildin er sú sterkasta hérna í Kína og státar af 2
ólympíugullum, nokkrum heimsmeistaratitlum og fjölmörgum
alþjóðlegum titlum og medalíum. Prógrammið er frekar stíft og er
vel skipulagt og fagmannlega framkvæmt. yfirleitt eru 3-4 æfingar
yfir daginn sú fyrsta byrjar á morgnanna kl.6 og er ýmist
hlaup....sprettir....stigahlaup eða fótbolti. Seinni æfingin byrjar
klukkann 9 og stendur yfir í 2-3 klst þar er yfirleitt gert
tækniæfingar eða kraftþjálfun. Þriðja æfinginn er svo alltaf
sparring(bardagi) og svo endað á púðaæfingum og stendur sú æfing
einnig yfir í 2-3 klst. Fjórða æfinginn er svo alltaf frjáls æfing
þar sem fólk annaðhvort teygir, vinnur á ákveðnum tækniæfingum
eða fer í leiki ...t.d. fótbolta eða eitthvað.
Kínverjarnir eru með mjög svipaðann stíl og kórea mjög hreinn,
hraður og teknískur en vantar doldið upp á styrk og kraft eins
og hjá flestum asíuþjóðunum.Kínverjarnir eru mjög
vingjarnlegir og opnir sem kom mér frekar á óvart.....bjóst við
öðruvísi viðhorfi gagnvart útlendingum.....en ég er ekki að
kvarta!!! Er mjög ánægður með það
En svo eru alltaf 2-5
þjálfara á hverri æfingu sem eru að aðstoða mann og leiðrétta. Á
milli æfinga er maður að borða og hvíla sig........... og á
kvöldin skreppur maður kannski í kínverskt nudd
alveg
brilliant
!!!
Fyrstu vikuna mína hérna í Kína þurfti ég að fara mjög varlega
út af hnéinu eftir opna Belgíska. En seinni vikunna setti ég svo
allt á fullt þótt svo að hnéið væri ennþá mjög aumt og
viðkvæmt.....en maður verður bara að harka af sér og ég keypti mér
stóra hnéhlíf með stórum púða til að verja hnéið
Síðan komu líka
norsaranir seinni vikuna sem var mjög gaman þar sem ég á marga góða
vini í liðinu. Ég deildi herbergi með Rheman sem er norsari af
pakistönskum uppruna og keppir í -67kg flokki(fjaðurvigt).Síðan
kemur breska landsliðið hingað seinustu vikuna mína.....nóg að
gera
Norsararnir komu einnig með marga úr unglingaliðinu sínu og
sáu þeir um að halda fjörinu uppi á hótelinu...hehehe!!
En ég ætla að segja þetta nóg í bili um Kína og ég mun blogga
meira mjög bráðlega og segja ykkur fleiri sögur héðann 
kveðja frá Kína! ciao.....Bjössitkd

af æfingu í Beijing Sports University

æfing....

morgunæfing....þá var gert stigahlaup og þrek....þurftum að fara
afturábak á höndum og fótum upp stigann.....mjög erfitt!!!

Kínverska liðið, Norska liðið og Íslendingurinn